STIMPLUN Opna Stimplun

Tímaskráning fyrir gólfefnaverktaka

Gólfefnavinna þýðir mörg verk, dreifð um bæinn, og lið sem færist á milli. Stimplun var mótað í daglegri notkun hjá gólfefnaverktaka — og það sést.

Stimplað inn á flotunarverkinu — GPS sýnir hvar og hvenær

Liðið mætir í fjölbýlishús, velur vinnustaðinn í appinu og stimplar sig inn. Þegar verkið klárast eftir hádegi og næsta tekur við í öðru hverfi, er stimplað út og inn aftur á nýja staðnum — tveir vinnustaðir, einn dagur, allt rétt skráð.

Starfsmenn geta bætt við vinnustöðum sjálfir

Ný verk byrja oft með stuttum fyrirvara. Stjórnandinn getur veitt starfsmönnum heimild til að stofna nýjan vinnustað beint í appinu — þannig stoppar tímaskráningin aldrei á því að verkstaðurinn vanti í kerfið.

Dagvinna, yfirvinna og hádegishlé — sjálfkrafa

Tímarnir skiptast sjálfkrafa eftir stillingum fyrirtækisins og helgarvinna telst sem yfirvinna. Um mánaðamót er launauppgjörið Excel-skjal á íslensku sniði, síað eftir tímabili, starfsmanni eða vinnustað.

Frí og forföll á einum stað

Sumarfrí, veikindi og persónulegir dagar eru sótt um og samþykkt í appinu og birtast á dagatali fyrirtækisins — stjórnandinn sér mönnunina fram í tímann.

Mótað í greininni

Stimplun er notað daglega af gólfefna- og flotunarfyrirtæki með mörg verk í gangi samtímis — kerfið er smíðað utan um nákvæmlega þetta vinnulag, ekki aðlagað eftir á.

Sjá einnig: tímaskráning fyrir rafvirkja og pípulagningamenn.

Prófaðu Stimplun

Innskráning með Google-reikningi — engin uppsetning, virkar í símanum.

Byrja núna

Uppfært: júní 2026